591 0100Símanúmer
Borgartún 35105 Reykjavík

Fagþekking tryggir góð vinnubrögð

Velkomin á vefsíðu félags dúkalagninga- og veggfóðrarameistara

Fréttir frá Samtökum iðnaðarins

Fleiri fréttir á si.is

Stofnað 1928

Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara

Dúklagningar og veggfóðrarar, sem oft eru kallaðir "dúkarar", eru faglærðir meistarar. Bóklegi hluti námsins fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík og Hafnarfirði. Verklegi hlutinn, sem er sá veigamesti, fer að mestu leyti fram í störfum hjá dúklagninga- og veggfóðrarameisturum. Nú starfa um 70 sveinar og meistarar í faginu á Íslandi.

Dúkari að störfum

Um félagið

Saga veggfóðrunar í Reykjavík nær aftur til byrjunar 19. aldar.
Dúklagnir komu hins vegar ekki til sögunnar fyrr en upp úr 1910. Árið 1925 kom enskur maður til bæjarins til að dúkleggja Landssímahúsið. Réðust menn í vinnu til hans og lærðu þeir dúklagnir af honum. Þremur árum síðar, eða 4. mars 1928, var haldinn fundur í Baðstofu iðnaðarmanna í Reykjavík. Þangað komu 11 veggfóðrarameistarar til að ræða hagsmunamál sín og stofna til samtaka. Á þessum fundi stofnuðu þeir með sér Veggfóðrarafélag Reykjavíkur og fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð:
> Formaður: Victor Kr. Helgason
> Ritari: Sigurður Ingimundarson
> Féhirðir: Björn Björnsson

Hér færðu hugmyndir

Ertu að fara að breyta hjá þér? Vantar þig innblástur? Hér getur þú skoðað ýmsa möguleika sem eru í að nota gólf og veggefni.

ParkiÁlfaborgKjaranGólfefnavalHarðviðarvalGólfefnabúðin