Fagþekking tryggir góð vinnubrögð
Velkomin á vefsíðu Félags dúkalagninga- og veggfóðrarameistara
Fréttir frá Samtökum iðnaðarins
Blikksmiðjur sameinast um jólaskraut til styrktar Píeta samtökunum
Á vel sóttum jólafundi Félags blikksmiðjueigenda var kynnt verkefni tíu blikksmiðja til styrktar Píeta samtökunum.
Ný stjórn Félags löggiltra rafverktaka kosin
Á aðalfundi Félags löggiltra rafverktaka var ný stjórn kosin og undirbúningur aldarafmælis félagsins hafinn.
Vel sóttur súpufundur iðnmeistara í Hafnarfirði
Um 40 iðnmeistarar kynntu sér uppbyggingaráform Hafnarfjarðar og nýja verkbókhaldslausn á súpufundi Meistarafélags iðnaðarmanna...
Staðan í byggingariðnaði til umræðu á súpufundi MBS
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir stöðuna í byggingariðnaði á fundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum.
Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
Dúklagningamenn og veggfóðrarar, sem oft eru kallaðir „dúkarar“, eru faglærðir sveinar eða meistarar. Bóklegi hluti námsins fer fram í Tækniskólanum í Reykjavík og Hafnarfirði. Verklegi hlutinn, sem er sá veigamesti, fer að mestu leyti fram í störfum hjá dúklagninga- og veggfóðrarameisturum.

Um félagið
Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara er fagfélag meistara í dúklögnum og veggfóðrun. Félagið var stofnað 4. mars 1928, þegar ellefu veggfóðrarameistarar komu saman í Baðstofu iðnaðarmanna í Reykjavík. Aðeins þremur vikum síðar gaf það út fyrsta uppmælingataxta iðnaðarmanna á Íslandi.
Í dag starfa um 70 sveinar og meistarar í faginu hér á landi. Dúkarar leggja gólfdúka og teppi, veggfóðra og sinna sérhæfðum verkum á borð við íþróttagólf, hlaupabrautir og hljóðdeyfandi gólfklæðningar, auk þess að klæða sundlaugar og þök. Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins.
Hér færðu hugmyndir
Ertu að fara að breyta hjá þér? Vantar þig innblástur? Hér getur þú skoðað ýmsa möguleika sem eru í að nota gólf og veggefni.











